Manneskjan á bak við Vald.
„Góð ráðgjöf byrjar á því að hlusta, skilja hvernig vinnan fer raunverulega fram og velja breytingar sem skipta máli.“

Silja
Valdemarsdóttir
15+ára reynsla
Ég hef yfir 15 ára reynslu af stafrænni þróun, þjónustuumbótum, ferlum og gögnum. Ég hjálpa fyrirtækjum að skapa yfirsýn, skýra ferla og innleiða breytingar sem nýtast í daglegu starfi.
Ég er sterkust þegar þarf að ná utan um flókin verkefni, tengja saman rekstur og tækni og fylgja lausnum eftir frá þarfagreiningu til framkvæmdar. Ég hef leitt verkefni þvert á starfseiningar og samræmt vinnu starfsfólks, tækniteyma og verktaka.
Reynsla í framkvæmd
- Veitur
- Stýrði þróun umsóknarvefs og samþættingu hans við CRM, kortlagði þjónustu- og samþykktarferla og leiddi uppbyggingu CRM í skýi.
- Arion banki
- Leiddi þróun CRM og lánakerfa, samræmdi ferla og byggði upp mælaborð og gagnayfirsýn fyrir starfsfólk og stjórnendur.
- Isavia
- Hannaði sameiginlegt fjárfestingar- og samþykktarferli og þróaði SharePoint-lausn sem studdi ferlið þvert á svið.
Ég hef sérþekkingu á Microsoft Dynamics 365 CRM og hef nýtt kerfið til að bæta þjónustuferla, styðja starfsfólk og skapa betri yfirsýn. Ég byrja á að greina þarfir og markmið fyrirtækisins og met síðan hvaða lausn hentar verkefninu.
Ég er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun, auk náms í vinnslu og greiningu gagna. Sá bakgrunnur styður viðskipta- og gagnadrifna nálgun mína á umbætur.
Eigum við að taka stöðuna?
Segið okkur hvað þið viljið bæta eða hvað hefur verið að flækjast fyrir ykkur. Við skoðum málið með ykkur og finnum hvar best er að byrja.