Um Vald

Vald í stuttu máli

Vald er ráðgjafarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að greina og bæta ferla, efla samstarf og taka gagnadrifnar ákvarðanir.

Tengipunktar á glervegg í björtu vinnurými
Leiðarljós

Það sem leiðir starfið.

Tilgangur

Vald er til að hjálpa fyrirtækjum að sjá reksturinn með ferskum augum og átta sig á því hvað þarfnast athygli. Utanaðkomandi sjónarhorn getur dregið fram tengsl og hindranir sem erfitt er að sjá í daglegu starfi.

Stefna

Við byggjum á því sem virkar og þróum reksturinn í yfirveguðum skrefum, með heildina og áhrif breytinga að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skilja stöðuna áður en endurskipulagt er og að læra af umbótum áður en lengra er gengið.

Nafnið okkar

Nafnið, staf fyrir staf.

V

Virði

Við einbeitum okkur að breytingum sem gera vinnuna skýrari og skapa virði.

A

Alúð

Við hlustum, spyrjum og vöndum okkur við að finna það sem hentar hverju fyrirtæki.

L

Lausnir

Við veljum lausnir út frá þörfinni og því sem virkar í framkvæmd.

D

Drifkraftur

Við fylgjum málum eftir svo góðar hugmyndir verði að aðgerðum.

Hvernig við vinnum

Gildin okkar

Við viljum að fyrirtæki gangi vel og skili árangri án þess að gleyma fólkinu sem heldur þeim gangandi. Þess vegna látum við þessi gildi ráða því hvernig við vinnum og hvaða lausnum við mælum með.

Hreinskilni

Við segjum það sem við sjáum, líka þegar það er óþægilegt, og hlustum af alvöru á sjónarmið annarra.

Sanngirni

Við gerum skýrar og sanngjarnar kröfur. Tillögur okkar þurfa að þjóna raunverulegum þörfum, ekki hagsmunum eins aðila á kostnað annarra.

Virðing

Við tölum fallega saman, tökum ólík sjónarmið alvarlega og munum að breytingar hafa áhrif á fólk.

Skynsemi

Við spyrjum hvað skiptir raunverulega máli áður en við leggjum til meiri vinnu, nýtt kerfi eða flóknara ferli.

Litir punktar í merki Vald tengjast stærri vínrauðum hringVALD
Merkið

Hvað merkið segir.

Merkið tengir fólk, ferla, tækni, upplýsingar og forystu. Stóri vínrauði hringurinn táknar sameiginlegt markmið.

Eigum við að taka stöðuna?

Segið okkur hvað þið viljið bæta eða hvað hefur verið að flækjast fyrir ykkur. Við skoðum málið með ykkur og finnum hvar best er að byrja.

Senda fyrirspurn