Þjónustan

Tengjum fólk, ferla og tækni

Við hjálpum fyrirtækjum að skýra ferla, móta lausnir og koma breytingum í framkvæmd með fólkinu sem þekkir starfið.

Hendur raða spjöldum í ferlakort á vinnuborði
Tímabundinn stuðningur

Þegar þið þurfið að koma málum af stað.

Verkefni geta verið mikilvæg þótt svigrúm til nýráðninga sé takmarkað. Vald getur komið inn í afmarkaðan tíma, tekið ábyrgð á umsömdum verkefnum og unnið með starfsfólki að því að koma þeim áfram.

Það getur átt við þegar nýtt starfssvið er að taka form, undirbúa þarf innleiðingu eða teymið þarf aukna aðstoð við verkefni sem annars bíða.

Samstarf sem tekur mið af þörfinni

Samstarfið getur verið afmarkað verkefni eða regluleg aðstoð í ákveðinn tíma. Við ákveðum umfang, ábyrgð og afhendingu í upphafi, svo þekking og verkefni geti færst til starfsfólks þegar samstarfinu lýkur.

Svona byrjum við

Frá stöðunni í dag að næstu skrefum.

Skoða

Við fáum yfirsýn yfir verkefni, ábyrgð, fólk og kerfi og hlustum á þá sem þekkja starfið.

Skilja

Við greinum hvað virkar, hvar hindranir liggja og hvaða áhrif mögulegar breytingar geta haft.

Koma í framkvæmd

Við forgangsröðum næstu skrefum saman, fylgjum framkvæmd eftir og aðlögum umbæturnar eftir því sem reynslan sýnir.

Þar sem við getum hjálpað

Skýrari ferlar · Betri yfirsýn · Réttar lausnir

Ferlagreining og umbætur

Við fylgjum raunverulegu verkefni í gegnum fyrirtækið, sjáum hvar upplýsingar eða ábyrgð týnast og mótum einfaldari ferla með fólkinu sem notar þá.

Stafræn þróun og lausnir

Við greinum þarfir rekstursins og hjálpum við að velja og innleiða lausnir sem styðja verklagið og fólkið.

Verkefnastýring og breytingar

Við sköpum sameiginlega sýn, skýrum ábyrgð og höldum utan um framvindu þegar mörg teymi vinna saman.

Gögn og ákvarðanir

Við setjum saman skýra yfirsýn yfir verk, kostnað og lykilmælikvarða svo hægt sé að forgangsraða og fylgjast með áhrifum breytinga.

Afhending

Það sem þið fáið í hendurnar.

Við ákveðum afhendingu út frá þörfinni. Hún getur meðal annars verið:

Kort af starfseminni

Yfirsýn yfir ferla, verkefni, ábyrgð og tengsl milli fólks og kerfa.

Rökstudd næstu skref

Forgangsraðaðar umbætur og framkvæmdaáætlun sem tekur mið af ávinningi, áhrifum og getu fyrirtækisins.

Skýrar kröfur

Kröfulýsing og viðmið til að velja lausn sem mætir þörfum rekstursins.

Verklag og eftirfylgni

Skjalfest verklag, yfirsýn yfir framvindu og afhending til þeirra sem taka við.

Dæmi: nýtt starfssvið er að taka form

Verkefnin eru til staðar en ábyrgð og verklag hafa ekki verið fullmótuð. Vald getur kortlagt stöðuna, mótað tillögur með teyminu og stýrt fyrstu umbótunum. Þegar starfsfólk tekur við liggja fyrir skýrt umfang, verklag og staða verkefna.

Fyrsti áfangi getur verið afmörkuð stöðugreining. Henni lýkur með sameiginlegri yfirferð á niðurstöðum og tillögu að næstu skrefum. Þið ákveðið þá hvort og hvernig samstarfið heldur áfram.

Gott samstarf

Þekking starfsfólksins er lykillinn.

Þekking og þátttaka

Þið þekkið starfsemina.

Við þurfum aðgang að upplýsingum og fólkinu sem þekkir reksturinn. Saman ákveðum við hverjir koma að verkefninu og gerum ráð fyrir tíma starfsfólks í samtöl, yfirferð og ákvarðanir.

Árangur og eftirfylgni

Við ákveðum markmiðin saman.

Skýrari ábyrgð, einfaldara verklag, betri upplýsingar eða verkefni sem komast áfram. Við ákveðum í upphafi hverju samstarfið á að skila og fylgjumst með því hvort umbæturnar gagnast í daglegu starfi.

Eigum við að taka stöðuna?

Segið okkur hvað þið viljið bæta eða hvað hefur verið að flækjast fyrir ykkur. Við skoðum málið með ykkur og finnum hvar best er að byrja.

Senda fyrirspurn