Vefskilmálar
Þessir skilmálar eiga við um kynningarvef Vald og fyrirspurnir vegna ráðgjafar fyrir fyrirtæki. Um ráðgjafarverkefni gildir sérstakt skriflegt samkomulag.
Síðast uppfært: 30. september 2026.
Rekstraraðili
Vald er þjónusta Með Vald ehf., kt. 680926-1740, Smárarima 60, 112 Reykjavík. Netfang: vald@medvald.is.
Upplýsingar um þjónustuna
Vefurinn lýsir ráðgjöf, afmörkuðum verkefnum og tímabundnum stuðningi við teymi. Lýsingar og dæmi gefa mynd af mögulegu samstarfi. Umfang, tímasetningar, afhending og verð eru ákveðin fyrir hvert verkefni. Dæmi á vefnum eru ekki loforð um tiltekna niðurstöðu.
Fyrirspurn er upphaf samtals
Fyrirspurn er ekki pöntun eða skuldbinding til kaupa. Þið getið haft samband með tölvupósti eða fyrirspurnarformi. Staðfestingarsíðan birtist þegar sendingarþjónustan hefur samþykkt erindið til sendingar. Það er ekki staðfesting á samþykktu verkefni eða trygging fyrir afhendingu tölvupósts. Ef villa kemur upp getið þið sent erindið á vald@medvald.is.
Sendið aðeins þær upplýsingar og viðhengi sem þarf til að lýsa erindinu. Ekki senda lykilorð, aðgangslykla, heilsufarsupplýsingar eða önnur viðkvæm gögn í formið. Ef verkefnið krefst trúnaðargagna er fyrirkomulag aðgangs og afhendingar ákveðið sérstaklega.
Samkomulag áður en vinna hefst
Áður en ráðgjafarverkefni hefst er gert skriflegt tilboð eða samningur. Þar er samið um verkefnið, ábyrgð aðila, afhendingu, tímaskráningu, verð og greiðslukjör, eftir því sem við á. Einnig þarf að taka afstöðu til trúnaðar, aðgangs að upplýsingum, réttinda til afurða, breytinga á umfangi og uppsagnar eða loka samstarfs.
Í verkefnum sem byggja á þekkingu starfsfólks er þátttaka þess og nauðsynlegur tími ákveðinn með verkkaupa. Breytingar á umfangi, kostnaði eða afhendingu eru staðfestar skriflega. Samkomulagið um verkefnið gengur framar almennum lýsingum á vefnum.
Persónuupplýsingar og trúnaðargögn
Um upplýsingar sem berast með fyrirspurn og tæknilega vinnslu á vefnum gildir persónuverndarstefna Vald. Meðferð gagna í ráðgjafarverkefnum er ákveðin sérstaklega. Ef Vald vinnur persónuupplýsingar fyrir hönd verkkaupa er gerður vinnslusamningur þegar þess er þörf.
Efni vefsins og breytingar
Réttindi til efnis vefsins tilheyra Með Vald ehf. eða viðkomandi rétthöfum. Ef þið viljið nota texta, myndir eða merki í öðru samhengi, hafið samband um heimild. Þetta takmarkar ekki notkun sem lög heimila.
Skilmálarnir geta breyst þegar þjónustan eða vefurinn breytist. Uppfærður texti og dagsetning birtast hér. Breyting á vefskilmálum breytir ekki áður gerðum verksamningi.